
Hoobla var stofnað 17. júní 2021 af Hörpu Magnúsdóttur. Dagsetningin er ekki valin af handahófi. Það þótti við hæfi að stofna fyrirtækið á deginum sem Íslendingar fagna sjálfstæði sínu, því Hoobla veitir sjálfstætt starfandi sérfræðingum verkefni með því að auðvelda fyrirtækjum og stofnunum að kaupa af þeim þjónustu.
Harpa er framkvæmdastjóri Hoobla. Hún er með meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Hún starfaði um árabil á því sviði hjá ORF Líftækni og BIOEFFECT og hefur veitt fjölmörgum fyrirtækjum mannauðsþjónustu og ráðgjöf.
Í dag veitir Hoobla viðskiptavinum aðgang að yfir 600 framúrskarandi sérfræðingum sem taka að sér tímabundin verkefni og hlutastörf.
Hoobla á í góðu samstarfi við Sjávarklasann og er með skrifstofu í húsnæði Sjávarklasans, Grandagarði 16 í Reykjavík. Hoobla hefur þjónustað yfir 300 íslensk fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög.
Markmið Hoobla er að vera leiðandi vettvangur (e. platform) á Íslandi fyrir sérfræðinga sem leita að verkefnum í sínu nærumhverfi. Hoobla styður við og hjálpar sérfræðingum að finna verkefni og fyrirtækjum og stofnunum að finna réttu sérfræðingana til að hámarka árangur.







Hooblarar eru uppfull af ástríðu, eldmóði, krafti og þrautsegju.
Með því að taka þátt í Hoobla, hvort sem við gerum það sem starfsmenn eða sérfræðingar, þá brennum við fyrir verkefnunum og eflumst og vöxtum.
Það að vera sjálfstætt starfandi krefst ástríðu, hugrekkis og þekkingar.
Við höfum ánægju af að reyna eitthvað nýtt, hitta nýtt fólk, kynnast nýjum vinnustöðum, takast á við ný viðfangsefni og áskoranir og fara reglulega út fyrir þægindarammann.
Við leggjum okkur fram um að veita fyrsta flokks þjónustu sem skapar virði fyrir viðskiptavini.
Við brennum fyrir og höfum ástríðu fyrir sérfræðiþekkingu okkar og getum fært sérfræðikunnáttu okkar til viðskiptavina.
Þetta getum við gert þar sem við byggjum á reynslubanka, samvinnu og reyndum aðferðum.
Vinnugleði, starfsánægja og áhugi fyrir verkefnum dagsins einkennir þá sérfræðinga sem starfa innan Hoobla samfélagsins.
Það fólk sem starfar í samstarfi við Hoobla kýs frelsi og sjálfstæði og verkefnin færa þeim gleði. Þess vegna tökum við þátt í samstarfinu.
Nafnið Hoobla er bein tilvitnun í gleðina. Því nafnið þýðir einmitt gleði, hamingja, kæti og síðast en ekki síst…. HÚRRA!