
22 september, 2026 - 16:18

Hoobla var stofnað 17. júní 2021, en fór formlega í loftið 22. september það sama ár.
Nú eru því fimm ár síðan Hoobla fór formlega af stað. Fimm ár síðan vefurinn var opnaður formlega með fjölmennu opnunarpartýi. Fimm ár síðan hugmynd varð að veruleika. Hugmynd um að fyrirtæki ættu að geta nálgast sérfræðiþekkingu á einfaldari og sveigjanlegri hátt. Já spenningurinn sem lá í loftinu þá... við finnum hann enn í brjóstum okkar núna. Þetta var allt eins og átti að vera.
Þegar Hoobla.is fór fyrst í loftið voru 30 sérfræðingar að bjóða fram þjónustu sína í gegnum Hoobla. Í dag eru þeir yfir 650 og hafa yfir 300 fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög nýtt sér þjónustu Hoobla.
Það segir okkur eitt: Þörfin fyrir sveigjanlegri leiðir til að fá sérfræðiþekkingu inn í fyrirtæki er svo sannarlega til staðar.
Frá upphafi hefur hugmyndafræðin á bak við Hoobla verið einföld. Fyrirtæki eiga að geta fengið aðgang að réttri þekkingu þegar þau þurfa á henni að halda og í því umfangi og í þann tíma sem hentar rekstrinum.
Stundum er þörf á fjármálastjóra í einn dag í viku. Mannauðsstjóra í 10–20% starfshlutfall. Verkefnastjóra til að leiða ákveðið verkefni í nokkra mánuði. Gæðastjóra til að koma ferlum í betra horf. Bókara nokkra tíma í viku eða CTO til að leiða tæknilega þróun án þess að ráða strax í fullt starf.
Og stundum þarf einfaldlega reyndan stjórnendaráðgjafa til að hjálpa stjórnendum að sjá hlutina frá nýju sjónarhorni og koma breytingum af stað.
Þetta er einmitt það sem Hoobla hefur snúist um undanfarin fimm ár; að tengja fyrirtæki við réttu þekkinguna þegar hennar er þörf.
Í tilefni af fimm ára afmælinu höfum við tekið enn eitt skrefið í þá átt að einfalda fyrirtækjum að fá sérfræðinga til starfa.
Við höfum útbúið nýjar flýtileiðir fyrir nokkrar af þeim tegundum sérfræðinga sem fyrirtæki leita mjög reglulega eftir inni á Hoobla.is
Nú getur þú farið beint inn og óskað eftir:
Ef þú velur að fara í gegnum flýtileiðirnar þá er núþegar komin inn verkefnalýsing og skilgreind sú hæfni sem almennt er leitað eftir. Þú þarft því ekki að byrja með autt blað eða velta fyrir þér hvernig eigi að setja verkefnið upp.
Þú velur einfaldlega þá þjónustu sem þú þarft, aðlagar verkefnið að þínum þörfum ef þess þarf og sendir verkefnið inn.
Síðan tekur Hoobla við.
Viðeigandi sérfræðingar innan Hoobla senda þér tilboð í verkefnið og þú velur þann sérfræðing sem hentar þér best.
Þegar við horfum yfir þessi fyrstu fimm ár Hoobla er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu fjölbreytt verkefnin hafa verið.
Hoobla er ekki lengur bara leið til að finna sérfræðing í afmarkað verkefni. Fyrirtæki nýta sérfræðinga í gegnum Hoobla með mjög ólíkum hætti, allt frá nokkurra vikna verkefnum yfir í langtímasamstarf þar sem sérfræðingur verður í raun hluti af teyminu í lágu starfshlutfalli (mætir jafnvel bara 1x í mánuði eða eftir þörfum).
Þannig getur lítið fyrirtæki fengið aðgang að sömu reynslu og þekkingu og mun stærra fyrirtæki, án þess að þurfa að byggja upp allar stöður innanhúss.
Það getur lækkað fastan kostnað, aukið sveigjanleika og gert fyrirtækjum kleift að sækja nákvæmlega þá sérfræðiþekkingu sem þau þurfa hverju sinni. Já samkeppnisfærnin eykst til muna.
Það hefur margt breyst frá því Hoobla fór af stað fyrir fimm árum. Tæknin hefur þróast, vinnumarkaðurinn hefur breyst og fyrirtæki eru sífellt opnari fyrir nýjum leiðum til að byggja upp teymi og nálgast sérfræðiþekkingu.
En grunnur Hoobla er enn sá sami
Við viljum gera sérfræðiþekkingu aðgengilegri, vinnumarkaðinn sveigjanlegri og gera fyrirtækjum auðveldara að fá réttu þekkinguna þegar þau þurfa á henni að halda, án þess að flækja hlutina.
Nýju flýtileiðirnar eru afmælisgjöf Hoobla til ykkar. Þær eru lítið skref innan Hoobla, en mikilvægt skref í vegferð ykkar að árangri.
Til hamingju með 5 ára afmælið Hoobla. 💚
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla