
19 janúar, 2025 - 03:29

Langir vinnudagar verða regla frekar en undantekning þegar uppgjörsvinna bætist ofan á dagleg verkefni, sem oft eru nægileg fyrir. Það er nánast óþekkt í atvinnulífinu að ofmönnun sé til staðar á vinnustöðum. Því er eingöngu hægt að komast yfir viðbótarverkefnin með því að auka hraðann og vinna meira.
Við gerð lokafærslna, skattauppgjörs, ársreikningagerðar og endurskoðunar skiptir miklu máli að þeir sérfræðingar sem koma að málum séu nákvæmir og hæfir á sínu sviði.
Of mikið álag getur stuðlað að mistökum og villum sem getur reynst dýrkeypt.
Aðkeypt þjónusta sérfræðinga getur því verið lykillinn að því að létta á álaginu og tryggja skilvirkni teymisins. Og reynslan hefur einnig sýnt að glöggt er gests augað!
Með því að fá utanaðkomandi sérfræðing má létta á álaginu, fá aukna innsýn í rekstrarstöðuna og skapa þá tækifæri til að auka hagnað eða draga úr kostnaði fyrirtækisins.
Eftirfarandi verða nefnd nokkur atriði um kosti þess að fá sjálfstætt starfandi fjármálasérfræðing til að létta undir með starfsmönnum og stjórnendum:
Auknar líkur eru á að allar færslur séu rétt skráðar og að bókhaldið sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir.
Þekking á skattalegum málefnum fæst með viðkomandi sérfræðingi, frádráttarbærir kostnaðarliðir eru örugglega bókfærðir og önnur úrræði nýtt sem hafa áhrif á skattbyrði.
Veitt er aðstoð við gerð fjárhagsáætlana til að undirbúa fyrirtækið fyrir komandi rekstrarár og tryggja greiðsluhæfi fyrirtækisins.
Betur sjá augu en auga! Þannig má koma í veg fyrir villur eða að misræmi sé til staðar í bókhaldinu.
Reyndur sérfræðingur getur greint leiðir til að einfalda bókhalds- og fjármálaferla. Þannig má spara tíma og fjármagn og auka skilvirkni og afköst.
Reyndur sérfræðingur á sviði fjármála getur bent á tækifæri til að auka hagnað eða draga úr kostnaði. Slík innsýn styður við stefnumótun og ákvörðunartöku.
Með því að nýta sér þjónustu sjálfstætt starfandi bókara, fjármálasérfræðings eða fjármálaráðgjafa geta fyrirtæki fengið allt þetta sem á undan er upptalið, sem getur leitt til bæði betri fjármálastjórnunar og aukins rekstrarhagræðis. Réttur stuðningur á mikilvægum tímum getur gjörbreytt því hvernig fyrirtæki tekst á við áskoranir í rekstri og eykur möguleikana á að ná framúrskarandi árangri
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla