
9 desember, 2025 - 00:00

Hoobla er tilnefnt ,,Besta íslenska vörumerkið á fyrirtækjamarkaði 2025"!
Vörumerki Hoobla er dýrmætasta eign okkar og endurspeglar það virði sem við færum viðskiptavinum okkar. Hoobla er markaðstorg sem auðveldar fyrirtækjum, stofnunum og sveitafélögum að finna sérfræðinga, stjórnendur og ráðgjafa sem taka að sér tímabundin verkefni og hlutastörf.
Við þökkum brandr innilega fyrir tilnefninguna og munum nýta þessa hvatningu til að halda áfram að styðja við viðskiptavini okkar með uppbyggilegum hætti.
Auk okkar hljóta fimm önnur frábær fyrirtæki tilnefningu í sama flokki: Arion banki, Ölgerðin Egill Skallagrimsson, Advania, Payday og dropp. Við óskum þeim innilega til hamingju.
Við erum afar þakklát og stolt af þessari tilnefningu og öllum Hooblurum nær og fjær💖
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla