
14 maí, 2026 - 00:22

Það er fjölbreyttur hópur sjálfstætt starfandi sérfræðinga sem eru í samstarfi við Hoobla. Allir sérfræðingar í samstarfi við Hoobla hafa farið í gegnum inntökuferli Hoobla og það eru eingöngu hæfir sérfræðingar sem má finna hjá Hoobla.
Sérfræðingarnir sem eru í samstarfi við Hoobla hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að tækla stór sem smá verkefni, vaxa hraðar, hugsa stærra og nálgast og leysa verkefni á nýjan hátt. Á árangursríkan hátt!
Þetta eru ekki bara verktakar, þetta eru reynslumiklir sérfræðingar sem koma inn með ferska sýn, sérþekkingu og kraft þegar mest á reynir.
Mannauðssérfræðingar sem eru í samstarfi við Hoobla hjálpa fyrirtækjum að byggja upp sterka menningu, finna og ráða rétta fólkið og styðja við stjórnendur og starfsmenn í breytingum og vexti. Þau eru að breyta leiknum með því að gera faglega mannauðsþjónustu aðgengilega fyrir fyrirtæki af öllum stærðum. Það er ekki alltaf þörf á að ráða í fullt starf.
Fjármála- og rekstrarsérfræðingar hjálpa fyrirtækjum að ná betri yfirsýn, skilvirkni og arðsemi. Hvort sem það er áætlanagerð, greiningar eða hagræðing, þá skapa þau verðmæti hratt og markvisst. Fyrirtæki geta fengið nákvæmlega þá reynslu sem þau þurfa, þegar þau þurfa hana.
Markaðssérfræðingar eru að hjálpa fyrirtækjum að verða sýnilegri, skapa skarpari fókus og tengjast sínum markhópi betur. Með blöndu af sköpun, gögnum, skipulagi og nýtingu gervigreindar eru þau að umbreyta því hvernig fyrirtæki nálgast markaðssetningu í dag.
Forritarar, CTO-ar og sérfræðingar á sviði hugbúnaðarþróunar eru að hjálpa fyrirtækjum að byggja upp lausnir, hraða þróun og taka tæknilegar ákvarðanir af meira öryggi. Þau eru að breyta leiknum með því að gera tæknilega sérþekkingu aðgengilega án þess að fyrirtæki þurfi byggja stór innanhússteymi. Og gleymum ekki að tala um hvernig þau hjálpa fyrirtækjum að hámarka nýtingu gervigreindar.
Öflugir verkefnastjórar skipta sköpum þegar hraði og utanumhald þurfa að haldast í hendur. Verkefnastjórar sem eru í samstarfi við Hoobla hjálpa fyrirtækjum að halda fókus, keyra verkefni áfram og tryggja að hlutirnir gerist. Það er ekki nóg að gera plan. Það þarf eftirfylgni. Það þarf Hoobla sérfræðing til að keyra verkefnið áfram!
Sérfræðingar á sviði gæða, sjálfbærni og ferlastjórnunar hjálpa fyrirtækjum að byggja sterkari grunn til framtíðar. Þau skapa verklag sem eykur bæði skilvirkni og ábyrgð og hjálpa fyrirtækjum að standast sífellt flóknari kröfur markaðarins.
Bókarar, launafulltrúar og tollskjalasérfræðingar hjálpa fyrirtækjum að halda rekstrinum gangandi af öryggi í tímabundnum verkefnum eða í lágu starfshlutfalli. Allt frá nákvæmu bókhaldi og launavinnslu yfir í flókin tollskjöl og inn- og útflutningsferla, þá koma þau með áreiðanleika, nákvæmni og dýrmæta sérþekkingu sem sparar fyrirtækjum bæði tíma og álag.
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla