
9 mars, 2026 - 14:42

Undanfarin misseri hefur gervigreind breytt landslagi tæknigeirans hratt. Fyrirtæki eru að endurskipuleggja starfsemi sína, straumlínulaga ferla og í mörgum tilfellum að skala niður starfsmannahópinn.
Þetta þýðir þó ekki að verkefnin hverfi. Þvert á móti.
Í mörgum fyrirtækjum safnast nú upp verkefni sem þarf að leysa, en þau passa ekki lengur inn í hefðbundnar ráðningar. Þar getur sveigjanleg aðkoma sérfræðinga skipt sköpum.
• Samkvæmt McKinsey gæti allt að 30% verkefna orðið sjálfvirknivædd fyrir árið 2030, þar sem 60% þeirra breytast verulega með tilkomu gervigreindartækni, sem mun bylta því hvernig fyrirtæki skipuleggja vinnu sína til framtíðar.
• Gartner spáir að yfir 40% fyrirtækja muni auka notkun sjálfstætt starfandi sérfræðinga í tækniverkefnum fyrir 2027.
Nýtt landslag verkefna í tæknimálum
Þegar fyrirtæki innleiða gervigreind og sjálfvirkni koma oft upp fjölmörg tæknileg verkefni sem þarf að leysa samhliða:
Þetta eru verkefni sem geta verið tímabundin, en samt mikilvæg fyrir reksturinn.
Að fastráða starfsmenn fyrir slík verkefni er ekki alltaf raunhæft. Og að fresta verkefninu getur líka verið kostnaðarsamt og verið dragbítur fyrir fyrirtækið.
Hoobla veitir sveigjanlegan aðgang að forriturum
Þarna kemur sveigjanlegur aðgangur að sérfræðingum inn sem öflug lausn. Í gegnum Hoobla geta fyrirtæki og opinberar stofnanir fengið eftir þörfum:
sem taka að sér afmörkuð verkefni eða störf í lágu starfshlutfallli.
Þannig er hægt að:
Hoobla skapar skynsamlega nýtingu mannauðs á tímum breytinga
Á tímum hraðra tæknibreytinga þurfa fyrirtæki að vera bæði öguð í kostnaði og opin fyrir nýjum vinnuaðferðum.
Með því að nýta sjálfstætt starfandi sérfræðinga geta fyrirtæki:
Þetta er einmitt sá veruleiki sem sífellt fleiri fyrirtæki eru að færa sig yfir í.
Verkefnamiðaður vinnumarkaður er að vaxa
Alþjóðlega er þróunin skýr! Sífellt fleiri sérfræðingar kjósa að vinna í verkefnum fremur en hefðbundnum stöðum.
Þetta á sérstaklega við um forritara, hugbúnaðararkitekta, AI sérfræðinga og tæknilega ráðgjafa.
Með því að tengja fyrirtæki við hæfa sérfræðinga getur Hoobla hjálpað til við að brúa bilið milli verkefna sem þarf að leysa og fólksins sem getur leyst þau.
Gervigreind eykur þörfina fyrir sjálfstætt starfandi sérfræðinga
Þó gervigreind geti sjálfvirknivætt mörg verkefni, þá krefst hún líka nýrrar þekkingar, nýrra uppsetninga og stillinga, nýrra lausna og notkun á nýjum kerfum.
Það þarf enn fólk til að:
Þess vegna verður sveigjanlegur aðgangur að sérfræðingum sífellt mikilvægari.
Hoobla tengir verkefni og sérfræðinga
Hoobla er vettvangur þar sem fyrirtæki og stofnanir geta fundið reynda sérfræðinga í tímabundin verkefni og hlutastörf.
Markmið Hoobla er einfalt: Að hjálpa fyrirtækjum að leysa verkefni hraðar með réttu sérfræðingunum þegar þau þurfa á því að halda.
Á tímum gervigreindar skiptir það meira máli en nokkru sinni fyrr!
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla