
13 júlí, 2025 - 23:49

Sumarfríin eru svo sannarlega dásamleg. Þau gefa okkur tíma til að hvíla okkur, hlaða batteríin og njóta lífsins.
En þegar við snúum aftur til vinnu eftir ljúft frí blasir oft við okkur annar og meira óspennandi veruleiki.
Verkefnin hafa hlaðist upp, verkferlar hafa stöðvast og ný markmið þurfa að klárast og það helst í gær.
Hér kemur snilldarlausn sem í einhverjum tilfellum fyrirtæki fara á mis við: Jú... það eru sjálfstætt starfandi sérfræðingar og ráðgjafar.
Með því að fá sjálfstætt starfandi sérfræðinga til starfa strax eftir sumarfrí fær fyrirtækið innblástur, nýja þekkingu, nýtt hugvit og afköst sem skila sér á augabragði. Sérfræðingarnir þurfa ekki mikið og langt innleiðingarferli því þeir eru vanir að koma í ný fyrirtæki, taka við nýjum verkefnum á hlaupum og koma verkefnunum áfram með markvissum hætti.
Hvort sem um er að ræða verkefnastjórnun, fjármál, mannauðsmál, stefnumótun, markaðssetningu eða gæðamál þá getur sjálfstætt starfandi sérfræðingur tekið við keflinu, fínstillt fókusinn og keyrt starfið í gang af krafti.
Í stað þess að fastráða starfsmann og bíða í margar vikur eftir réttum einstaklingi, getur þú með einföldu móti fengið hæfan sérfræðing til starfa sem er tilbúinn að vinna verkefnið strax. Það er lausn sem hentar sérstaklega vel þegar verkefnið eða þörfin er tímabundin, óvissan mikil eða verkefnin krefjast sértækrar sérfræðiþekkingar.
Sjálfstætt starfandi sérfræðingar koma oft inn með reynslu úr ólíkum fyrirtækjum og greinum. ,,Glöggt er gests augað", því þeir sjá það sem starfsmenn eru orðnir blindir á. Þeir spyrja réttu spurninganna og hjálpa til við að brjóta upp gömul mynstur. Það getur verið ómetanlegt þegar stefna fyrirtækis er að mótast fyrir haustið eða þegar þarf að ná fram árangri á met tíma.
Þarfir fyrirtækja eftir sumarfrí eru mismunandi. Sum þurfa að brúa tímabundið skarð vegna forfalla, tímabundinna álagstoppa eða tímabundinnar þarfar. Önnur vilja setja af stað ný verkefni eða leita að aðstoð við að endurmeta stöðuna. Sjálfstætt starfandi sérfræðingar bjóða upp á sveigjanleika sem hentar í öllum þessum aðstæðum. Þeir koma inn þegar þörfin er til staðar og fara þegar verkefninu lýkur.
Ef markmiðið er að komast hratt af stað eftir fríið, skilgreina nýjar áherslur eða klára verkefni sem hafa legið niðri, þá eru sjálfstætt starfandi sérfræðingar ekki bara góð hugmynd, þeir eru lykill að góðum árangri.
Næst þegar þú ert á skrifstofunni og upplifir að vera týnd/ur, vantar kraft, skýrleika og fókus þá er gott að hugsa:
„Ætla ég að verja næstu vikum í að peppa mig upp og koma öllu í gang… eða ætla ég að fá aðstoð frá sérfræðingi sem hjálpar mér að keyra af stað strax í dag?“
Svarið er einfalt!
Ef þú vilt með einföldum hætti finna rétta sérfræðinginn fyrir þitt verkefni þá er það mjög einfalt með hjálp Hoobla. Þú finnur réttan sérfræðing á augabragði á Hoobla.is, og getur byrjað haustið af krafti.
Minna stress – meiri árangur.
Þannig eru Hoobla áhrifin 🌟
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla