
11 október, 2024 - 13:25

Hoobla var stofnað 17. júní 2021 af Hörpu Magnúsdóttur.
Hörpu þótti við hæfi að stofna fyrirtækið á deginum sem Íslendingar fagna sjálfstæði sínu því Hoobla er íslenskt fyrirtæki með markmið um að skapa aukið sjálfstæði, sveigjanleika og frelsi í atvinnulífinu.
Hún stofnaði Hoobla eftir að hafa séð að það var enginn slíkur vettvangur í íslensku atvinnulífi og því oft erfitt að finna sérfræðinga sem eru tilbúnir að vinna verkefnabundið.
Hoobla leggur sig fram um að vera leiðandi verkvangur (e. platform) þar sem fyrirtæki og stofnanir hafa greiðan aðgang að sérfræðingum, stjórnendum og ráðgjöfum í nærumhverfi sem taka að sér tímabundin verkefni og hlutastörf. Þannig auðveldar Hoobla þeim að eiga viðskipti sín á milli og hámarkar árangur beggja.
Hoobla hefur þróað framúrskarandi hugbúnað sem gerir tenginguna milli vinnustaða og sérfræðinga einfalda og án mikillar fyrirhafnar getur fólk farið að vinna saman.
Í dag veitir Hoobla viðskiptavinum aðgang að yfir 600 framúrskarandi sérfræðingum sem taka að sér tímabundin verkefni og hlutastörf. Yfir 300 vinnustaðir hafa nýtt sér þjónustu Hoobla. Þar á meðal má nefna Eimskip, Ístak, Tixly, Terra, Skólamat, Reykjavíkurborg, Reykjanesbæ, Hafrannsóknastofnun, Þjóðminjasafnið o.fl. öfluga atvinnurekendur.
Orðið ,,Hoobla" má finna í enskri borgarorðabók þar sem það segir að orðið standi fyrir að vera: ,,Mjög, mjög hamingjusamur", ,,ah, vinur, ég er svo hoobla!", ,,Við erum búin að vinna, húrra fyrir því!" Svo nú stendur orðið Hoobla fyrir miklu miklu meira. Nú stendur það einnig fyrir að vera valkostur Nr.1 þegar leitað er að sjálfstætt starfandi sérfræðingum í nærumhverfi.
Harpa er framkvæmdastjóri Hoobla. Hún er með meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Hún starfaði um árabil á því sviði hjá ORF Líftækni og BIOEFFECT og hefur veitt fjölmörgum fyrirtækjum mannauðsþjónustu og ráðgjöf.
Gildi Hoobla eru ástríða, fagmennska og gleði og þau munu marka spor Hoobla fram á við.
Hoobla á í góðu samstarfi við Sjávarklasann og er með skrifstofu í húsnæði Sjávarklasans, Grandagarði 16 á 2. hæð.
Kynntu þér Hoobla betur hér á vefsíðu okkar.
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla