
18 júní, 2026 - 13:22

Þann 17. júní 2021 var Hoobla stofnað og voru þá 30 stofnmeðlimir skráðir í Hoobla.
Síðan þá hefur Hoobla vaxið og dafnað, rétt eins og barn sem slítur barnaskónum og stígur sífellt stærri skref. Í dag eru sérfræðingar á vettvangi Hoobla orðnir yfir 650 talsins og við höfum þjónustað yfir 300 fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög.
Það sem gleður okkur ekki síst er að stór hluti viðskiptavina okkar snýr aftur. Um þriðjungur viðskiptavina Hoobla hefur endurtekið viðskiptin og leitar aftur til okkar þegar ný verkefni eða áskoranir koma upp. Það er skýr vísbending um það traust sem hefur byggst upp á þessum fyrstu fimm árum.
Í gegnum Hoobla fá fyrirtæki og stofnanir greiðan aðgang að reyndum sérfræðingum, stjórnendum og ráðgjöfum sem geta tekið að sér tímabundin verkefni eða sinnt störfum í lágum starfshlutföllum. Lausnin hentar jafnt litlum sem stórum verkefnum og gefur fyrirtækjum aukinn sveigjanleika til að bregðast við breytingum, óvissu, nýta sér sérþekkingu þegar hennar er þörf og halda föstum kostnaði í skefjum.
Á þessum fimm árum höfum við séð hvernig vinnumarkaðurinn hefur breyst. Fyrirtæki leita í auknum mæli að sérfræðiþekkingu sem hægt er að fá inn á réttum tíma og í réttum mæli. Um leið vilja fleiri sérfræðingar hafa frelsi til að velja verkefni, stýra eigin tíma og miðla þekkingu sinni á fjölbreyttan hátt. Hoobla hefur verið brúin á milli þessara tveggja þarfa.
Ferðalagið hefur verið bæði krefjandi og skemmtilegt. Við höfum lært, þróast og byggt upp vettvang sem þjónar hundruðum fyrirtækja og hundruðum sérfræðinga. Á leiðinni höfum við fengið að kynnast ótrúlega öflugu fólki sem hefur hjálpað okkur að móta Hoobla að því sem fyrirtækið er í dag.
Við viljum því nota tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa verið hluti af ferðalaginu, viðskiptavinum, sérfræðingum, samstarfsaðilum, stjórn, ráðgjöfum og vinum Hoobla. Án ykkar væri Hoobla ekki þar sem það er í dag.
Til hamingju með fimm ára afmælið, Hoobla! 🎉
Í fimm ár höfum við tengt saman fólk, þekkingu og verkefni á skilvirkan hátt til framtíðar. Við erum stolt af því sem áunnist hefur og okkur finnst við rétt vera að byrja. Framtíðin er björt og tækifærin fjölmörg.
Nafnið Hoobla stendur fyrir „mjög mjög glöð“ og „húrra“.
Þess vegna segjum við í tilefni dagsins: Fimmfalt Hoobla fyrir Hoobla!
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla