
24 febrúar, 2025 - 07:54

Ferðaþjónusta er ein af sóknaratvinnugreinum íslensks efnahagslífs. Rekstrarumhverfið er krefjandi, þar sem árstíðabundnar sveiflur lita reksturinn og margir atvinnurekendur reiða sig á starfsmenn sem eru ráðnir til skamms tíma í senn. Skilvirkar og hraðar ráðningar ásamt hnitmiðaðri þjálfun starfsmanna skipta þá miklu máli
Sjálfstætt starfandi mannauðsstjórar geta gegnt lykilhlutverki í að styðja ferðaþjónustufyrirtæki við að ná markmiðum sínum, tryggja þjónustugæði, skapa starfsánægju, ná fram skilvirkum rekstri, styðja við stjórnendur og auka samkeppnisfærni. Þannig fá fyrirtækin sérhæfða aðstoð án þess að þurfa að halda úti föstum mannauðsdeildum eða vera með fastráðinn mannauðsstjóra. 🚀
Oft er mikið stress og álag sem einkenna ráðningatímabilið. En það má létta á álaginu með aðkeyptri þjónustu mannauðsstjóra sem geta aðstoðað við;
Mikil starfsmannavelta getur valdið auknum kostnaði og minnkað þjónustugæði. Til að draga úr starfsmannaveltu geta mannauðsstjórar:
Vinnumarkaðslöggjöfin er í sífelldri þróun, og ferðaþjónustuaðilar þarfnast réttrar ráðgjafar til að tryggja samræmi við gildandi lög og reglugerðir. Mannauðsstjórar geta m.a.:
Til að hvetja starfsmenn til árangurs geta mannauðsstjórar:
Oft er sagt að þar sem eru starfsmenn, þar koma upp vandamál. Starfsmannavandamál geta haft áhrif á starfsanda og þjónustugæði innan fyrirtækisins. Sjálfstætt starfandi mannauðsstjórar geta hjálpað við:
Vel skipulagður vinnutími er lykilatriði í ferðaþjónustu og það er mikilvægt að meta hvar er hægt að veita sveigjanleika og stuðla að því að mönnun sé með sem bestum hætti. Mannauðsstjórar geta:
Með því að nýta sjálfstætt starfandi mannauðsstjóra geta ferðaþjónustufyrirtæki tryggt betri gæði í mannauðsstjórnun, komið í veg fyrir kulnun eigenda og stjórnenda, aukið sveigjanleika í rekstri og gert að verkum að störf stjórnenda verða skemmtilegri. Þetta er hægt að gera án þess að halda útí fastráðinni mannauðsdeild.
Fyrirtæki sem hafa nýtt sér þjónustu Hoobla hafa náð fram auknum stöðugleika í mönnun, ánægðara starfsfólki sem veitir þá betri þjónustu og stuðlað þannig að rekstrarhagræði.
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla