
12 maí, 2026 - 13:35

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.
Við í Hoobla erum afar stolt af því að hafa verið tilnefnd í hópi lítilla fyrirtækja.
Mikil vinna og hugarleikfimi liggur að baki hönnun og þróun Hoobla hugbúnaðarins, sem er veflægur.
Verðlaunahátíðin fór fram í Hörpu, tónlistarhúsi, 21. mars 2025. Þó að Hoobla hafi ekki staðið uppi með bikar þá er tilnefningin ein og sér mikill heiður.
Einvala meistarar unnu síðuna með Hoobla, og ber þar helst að nefna Elías Gíslason, Kjartan Örn Bogason, Friðrik Snær Ómarsson, Kristinn Örn Kristinsson, Ragnheidur H. Magnusdottir, Ingvar Bjarnason og Harpa Magnusdottir 💜
Takk fyrir okkur SVEF - The Icelandic Web Industry Association - SVEF / Samtök vefiðnaðarins
Við óskum öllum sigurvegurum til hamingju! Þið eruð geggjuð! 💜
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla