
12 maí, 2026 - 13:37

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.
Við í Hoobla erum afar stolt af því að hafa verið tilnefnd í flokkunum "Innri vefur ársins" og "Tækninýting ársins"
Mikil vinna og hugarleikfimi liggur að baki hönnun og þróun Hoobla hugbúnaðarins, sem er veflægur.
Verðlaunahátíðin fór fram í Hörpu, tónlistarhúsi, 26. mars 2026 sl. og Hoobla fékk "Runner Up" viðurkenningu fyrir innri vef Hoobla.
Einvala meistarar unnu síðuna með Hoobla, og ber þar helst að nefna Elías Gíslason, Kjartan Örn Bogason, Friðrik Snær Ómarsson, Kristinn Örn Kristinsson, Ragnheidur H. Magnusdottir, Ingvar Bjarnason, Guðrún Gerður Johansen Steindórsdóttir og Harpa Magnusdóttir 💜
Takk fyrir okkur SVEF - The Icelandic Web Industry Association - SVEF / Samtök vefiðnaðarins
Við óskum öllum sigurvegurum til hamingju! Þið eruð geggjuð! 💜
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla