
26 október, 2026 - 17:57

Við læsum útidyrunum þegar við förum að heiman, fáum okkur þjófavarnarkerfi og tryggjum húsnæðið fyrir tjóni. En hvað með verðmætustu eignir fyrirtækisins, gögnin, upplýsingarnar og tölvukerfin?
Eru þau jafn vel varin?
Undanfarnar vikur hafa fréttir af alvarlegum öryggisgöllum minnt okkur á að netöryggi er ekki eitthvað sem við getum sett á verkefnalistann og hugsað: „Þetta skoðum við þegar það verður aðeins rólegra.“
Því miður bíða tölvuþrjótarnir ekki eftir hentugum tíma í dagatalinu okkar!
Þann 21. október síðastliðinn greindi RÚV frá alvarlegum öryggisgöllum í PHP-forritunarmálinu sem gætu haft áhrif á fjölda vefsíðna, bæði hér á landi og erlendis.
Gallarnir voru svo alvarlegir að sumir íslenskir vefir voru teknir tímabundið úr sambandi á meðan unnið var að öryggisráðstöfunum.
Og þetta er langt frá því að vera eina dæmið.
Árið 2023 varð Brimborg fyrir alvarlegri netárás þar sem gögn voru tekin í gíslingu. Árið eftir varð Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, fyrir umfangsmikilli árás sem hafði áhrif á starfsemi fyrirtækisins.
Þetta eru ekki atriði úr spennumynd á Netflix. Þetta eru ekki einu fyrirtækin á Íslandi sem hafa lent í viðlíka árásum. Þetta er raunveruleikinn!
Og hann snertir okkur öll.
Hljómar kunnuglega?
Staðreyndin er sú að tölvuþrjótar velja ekki alltaf fórnarlömb sín eftir stærð eða frægð. Sjálfvirkar árásir geta beinst að kerfum þar sem veikleikar finnast, óháð því hver á þau.
Það þarf heldur ekki alltaf flókna árás til að valda miklu tjóni. Óuppfærður hugbúnaður, veik lykilorð eða ófullnægjandi aðgangsstýringar geta skapað óþarfa áhættu.
Og afleiðingarnar geta verið dýrar:
Spurningin er því ekki bara hvort fyrirtækið þitt geti orðið fyrir netárás, heldur hversu vel það er undirbúið ef eitthvað gerist.
Nei, alls ekki!
Og hér koma góðu fréttirnar.
Það þurfa ekki öll fyrirtæki að vera með sérstaka netöryggisdeild eða sérfræðing á launaskrá allan ársins hring.
En þau þurfa að hafa aðgang að réttri þekkingu þegar á reynir.
Þar kemur Hoobla til sögunnar.
Í gegnum Hoobla hafa fyrirtæki og stofnanir greiðan aðgang að reyndum sérfræðingum í upplýsinga- og netöryggismálum, hvort sem um er að ræða afmarkað verkefni, tímabundna aðstoð eða reglulega ráðgjöf í lágu starfshlutfalli.
Það getur til dæmis falist í að:
Við hjá Hoobla trúum því að fyrirtæki eigi að geta nýtt sér sérfræðiþekkingu án þess að þurfa alltaf að ráða fólk í 100% starfshlutfall í framtíðarstarfi.
Stundum þarf aðeins nokkurra vikna átak til að greina stöðuna og koma mikilvægum úrbótum í framkvæmd. Í öðrum tilvikum hentar betur að hafa reyndan sérfræðing til ráðgjafar nokkrar klukkustundir í mánuði.
Það er einmitt styrkur Hoobla.
Með yfir 650 sérfræðinga, stjórnendur og ráðgjafa í samstarfsneti Hoobla hjálpum við fyrirtækjum að finna rétta fólkið í réttu verkefnin.
Þú skilgreinir þörfina, færð tilboð frá hæfum sérfræðingum og velur þá lausn sem hentar þínum rekstri.
Ekkert flókið ráðningarferli. Engin óþarfa langtímaskuldbinding.
Bara rétta sérfræðiþekkingin þegar þú þarft á henni að halda.
Það er auðvelt að fresta verkefnum sem virðast ekki aðkallandi. Sérstaklega þegar allt virkar eins og það á að gera.
En þegar kemur að netöryggi getur fyrirbyggjandi vinna skipt sköpum.
Svo hér er spurning til þín, kæri stjórnandi:
Ef þú mættir í vinnuna á morgun og kæmist ekki inn í tölvukerfin þín, vissir þú nákvæmlega hvern þú ættir að hringja í og hvað þyrfti að gera?
Ef svarið er „ekki alveg“, þá gæti verið rétti tíminn til að fá sérfræðing til að taka stöðuna.
Ekki bíða eftir næstu netárás. Vertu skrefi á undan.
👉 Finndu rétta sérfræðinginn á Hoobla
Minna stress. Meiri árangur með Hoobla!
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla