
30 júlí, 2026 - 18:45

Það er algengur misskilningur að fyrirtæki þurfi annað hvort að ráða mannauðsstjóra í 100% starf eða sleppa því alfarið.
Raunin er allt önnur.
Nýlega leitaði til Hoobla íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur vaxið hratt á alþjóðavísu. Fyrirtækið þróar sérhæfðan hugbúnað, þjónustar viðskiptavini víða um heim og er með starfsfólk í fleiri en einu landi. Þrátt fyrir öflugan vöxt var starfsmannafjöldinn ekki orðinn það mikill að það réttlættti ráðningu mannauðsstjóra í fullt starf.
Þetta er staða sem sífellt fleiri fyrirtæki þekkja.
Þegar fyrirtæki stækka breytast þarfirnar hratt.
Það þarf að:
Þessi verkefni eru mikilvæg en þau fylla ekki endilega heilt starf.
Í stað þess að ráða í fullt starf setti fyrirtækið verkefnið inn á Hoobla.is og fékk tilboð frá reynslumiklum mannauðsstjórum sem voru tilbúnir að taka að sér verkefnið í lágu starfshlutfalli.
Þannig fékk fyrirtækið aðgang að sérfræðiþekkingu í takti við þarfir fyrirtækisins, í stað þess að leggja út í of mikinn kostnað sem ráðningu hefði fylgt. Að auki verður auðvelt að aðlaga starfshlutfallið eftir því sem fyrirtækið þróast áfram.
Fyrir mörg fyrirtæki snýst áskorunin ekki um að vanta starfsfólk.
Hún snýst um að vanta réttu sérfræðiþekkinguna á réttum tíma og í því hlutfalli sem vantar hverju sinni.
Með því að nýta sjálfstætt starfandi sérfræðinga geta fyrirtæki fengið öflugan mannauðsstjóra, fjármálastjóra, markaðsstjóra, verkefnastjóra, forritara eða aðra sérfræðinga án þess að skuldbinda sig til ráðningar í fullu starfi.
Það skapar meira svigrúm til vaxtar, lægri fastan kostnað og hraðari viðbrögð þegar nýjar þarfir koma upp.
Sífellt fleiri fyrirtæki starfa yfir landamæri, byggja upp dreifð teymi og þurfa sérfræðiþekkingu sem er ekki nauðsynleg alla daga ársins.
Þá getur hlutastarf eða verkefnabundin ráðning sérfræðings verið mun skynsamlegri leið en hefðbundin ráðning.
Hjá Hoobla hjálpum við fyrirtækjum að finna reynda sérfræðinga sem geta komið inn þegar þeirra er þörf, hvort sem um er að ræða 10%, 30% eða hærra starfshlutfall.
Stundum er besta ráðningin einfaldlega að fá sérfræðing í lágt starfshlutfall.
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla