
1 júlí, 2026 - 09:45

Rafrumkvöðullinn Joonas Tuompo er nýr meðlimur í stjórn Hoobla.
Joonas Tuompo er nýr meðlimur í stjórn Hoobla, en hann er raðfrumkvöðull og kemur inn í stjórnina með víðtæka reynslu af uppbyggingu, stefnumótun, vexti og þróun fyrirtækja á sviði fjártækni og stafrænnar þjónustu á Norðurlöndunum.
Fyrir í stjórn eru stjórnarformaðurinn Ragnheiður H. Magnúsdóttir og Ingvar Bjarnason.
„Það er mér mikill heiður að taka sæti í stjórn Hoobla og ég þakka það traust sem mér er sýnt. Hoobla er að byggja upp lausn sem hefur raunverulegt virði fyrir fyrirtæki og sérfræðinga og ég hlakka til að leggja mitt af mörkum á næsta vaxtarskeiði félagsins,“ segir Joonas Tuompo.
„Við erum afar ánægð með að fá Joonas til liðs við stjórn Hoobla. Reynslan sem hann hefur aflað sér við uppbyggingu og þróun fyrirtækja á erlendum mörkuðum mun nýtast okkur vel á komandi árum. Við sjáum mikil tækifæri fram undan og hlökkum til samstarfsins,“ segir Harpa Magnúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Hoobla.
Lesa má fréttatilkynningu í Viðskiptablaðinu hér.
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla