
12 nóvember, 2024 - 11:31

Í hröðu og síbreytilegu viðskiptaumhverfi verður stöðugt mikilvægara að fyrirtæki séu sveigjanleg og kvik. Því er stöðugt leitað leiða til að skapa sveigjanleika og skilvirkni í rekstri fyrirtækja. Í því samhengi færist í vöxt að fyrirtæki fái til liðs við sig sjálfstætt starfandi verkefnastjóra.
Reynslumiklir sjálfstætt starfandi sérfræðingar geta haft veruleg áhrif á sveigjanleika og skilvirkni fyrirtækja af öllum stærðum.
Hér á eftir fer ég því aðeins yfir hvernig sjálfstætt starfandi verkefnastjórar geta umbreytt rekstri fyrirtækja og leitt verkefni innan þeirra til árangurs.
Það er dýrt að fastráða starfsfólk, sérstaklega þegar tekið er tillit til launatengds kostnaðar, fríðinda, þjálfunar og kostnaðar við yfirbyggingu.
Sjálfstætt starfandi verkefnastjórar geta verið sveigjanlegri og hagkvæmari valkostur án þess að það komi niður á gæðum vinnuframlags. Oftast eru þeir fengnir til starfa til að taka að sér tímabundin verkefni eða að vera með fyrirtækinu eftir þörfum í því starfshlutfalli sem hentar hverju sinni. Það gerir fyrirtækjum kleift að greiða fyrir þjónustu þeirra og sérfræðiþekkingu einungis þegar þess er þörf. Þetta getur leitt til umtalsverðs sparnaðar.
Einn helsti kosturinn við sjálfstætt starfandi verkefnastjóra er sveigjanleiki þeirra. Þeir geta komið inn með stuttum fyrirvara til að stjórna brýnum verkefnum eða hjálpað fyrirtækjum að skala sig upp og stækka á álagstímum. Þessi aðlögunarhæfni tryggir að fyrirtækið sé áfram lipurt og móttækilegt fyrir breytingum á markaði. Sjálfstætt starfandi verkefnastjórar geta auðveldlega aðlagast þeirri verkefnastjórnunaraðferð sem fyrirtækin kjósa, hvort sem það er Agile, Scrum eða sérsniðin nálgun.
Sjálfstætt starfandi verkefnastjórar koma víða við. Þeir vinna oft á mörgum stöðum og sinna mörgum verkefnum á ári hverju. Þannig öðlast þeir mikla reynslu og fjölbreytta innsýn í mismunandi aðstæður. Þeir koma með nýjar hugmyndir og geta innleitt bestu starfsvenjur frá öðrum geirum, geta boðið upp á nýstárlegar lausnir á vandamálum sem innanhúss teymi eiga erfitt með að bjóða upp á. Þeir veita starfsmannahópnum innblástur þar sem þeir koma inn með sköpunargleði, nýja orku og nýja nálgun við lausn verkefnaáskorana sem annars geta staðið í stað.
Fastráðið starfsfólk er oft önnum kafið í allskonar ólíkum verkefnum á sama tíma, á meðan sjálfstætt starfandi verkefnastjórar algjörlega einbeittir í að leysa það verkefni sem þeim er falið að leysa. Þeir eru mjög drifnir af því að halda í kostnað og halda verkefninu innan fjárhagsáætlunar og skila niðurstöðum á réttum tíma. Margir þessara verkefnastjóra eru einnig sérfræðingar á sínu sviði, hvort sem það er í upplýsingatækni, markaðssetningu, byggingariðnaði eða aðfangakeðjustjórnun, sem gerir þá dýrmæta við úrlausn flókinna eða sérhæfðra verkefna.
Sjálfstætt starfandi sérfræðingar eru vanir að taka að sér tímabundin verkefni og byrja því hratt að vinna. Þeir skilja mikilvægi þess að koma sér fljótt inn í hlutina og skila árangri strax, sem getur leitt til hraðari verkefnaloka. Auk þess hafa þeir sterka hvata til að skila hágæða afrakstri, þar sem frammistaða þeirra hefur áhrif á framtíðar verkefni.
Einnig má nefna að þegar verkefninu er lokið þá hættir verkefnastjórinn störfum og fyrirtækið hættir að greiða fyrir þjónustuna. Það að kostnaðurinn fylgi verkefninu minnkar fjárhagslega áhættu fyrir fyrirtækið.
Sjálfstætt starfandi verkefnastjórar eru ekki bara tímabundin lausn fyrir fyrirtæki sem þurfa tímabundna aðstoð eða auka hendur. Þeir eru stefnumótandi samstarfsaðilar sem koma með sérfræðiþekkingu, nýsköpun, skilvirkni og sveigjanleika inn í starfsemina.
Hvort sem þú ert fara að framleiða nýja vöru, bæta rekstrarferla, þarfnast stjórnar á innviðaverkefni eða vantar stjórn á umfangsmiklum breytingum í fyrirtækinu, þá getur sjálfstætt starfandi verkefnastjóri verið mikilvægur samstarfsaðili til að ná væntum árangri.
Þar sem vinnumarkaðurinn heldur stöðugt áfram að þróast þá gæti sjálfstætt starfandi verkefnstjóri verið lykillinn að því að vera skrefi á undan samkeppninni.
Með því að samþætta sjálfstætt starfandi sérfræðinga inn í starfsmannahópinn og inn í þinn rekstur þá geturðu opnað fyrir ný tækifæri til vaxtar, nýsköpunar og árangurs.
Af hverju að sætta sig við minna?
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla