
18 september, 2025 - 12:20

Á síðustu árum hefur átt sér stað mikil breyting á vinnumarkaði. Við höfum orðið vitni að alþjóðlegri vitundarvakningu og breytingu varðandi hvernig fyrirtæki og stofnanir nálgast sérfræðiþekkingu. Í auknum mæli er horft á verkefnin sem leysa þarf og þau ýmist unnin í staðvinnu eða fjarvinnu af fastráðnu starfsfólki eða verktökum. Sjálfstætt starfandi sérfræðingar eru ekki lengur jaðarlausn, heldur lykilbreyta í að skapa samkeppnisfærni í vinnuumhverfi sem er að taka stakkaskiptum með tilkomu nýrrar tækni og breytingu starfa.
Svigrúmið sem skapast minnkar fastan kostnað og eykur framleiðni
Sveigjanleiki, kostnaðarhagkvæmni og framleiðniaukning sem þessu vinnufyrirkomulagi fylgir er óumdeilanlegt. Því má vel halda því fram að nú sé kominn tími til að sveitarfélög og opinberar stofnanir nýti sér það í auknum mæli.
En hvað getum við þá gert til að nýta okkur þennan valkost?
Það væri hægt að hugsa sér að sá hluti starfa sem snýr að kjarnastarfsemi séu unnin af fastráðnum starfsmönnum og sá hluti starfa sem geta verið verkefnabundin séu unnin af sjálfstætt starfandi sérfræðingum. Þannig höfum við alla þá þekkingu sem er þörf hverju sinni og hlúum samtímis að kjarnastarfseminni. Fyrirkomulagið hentar öllum rekstrareiningum, einnig þeim sem eru á landsbyggðinni.
”Á landsbyggðinni er aðgengi að sérfræðingum takmarkað og því stundum erfiðara að ráða sérhæft fólk í sérhæfð störf. Því er mikilvægt að hafa aðgang að sérfræðingum sem koma og fara yfir lengri eða skemmri tíma. Almennt talað held ég að sveitarfélög noti töluvert af hefðbundinni ráðgjöf sem við gerum einnig, en við höfum líka verið að nýta okkur sérfræðinga í gegnum Hoobla sem ganga í tímabundin störf og það hefur gengið mjög vel”, segir Pétur Arason, sveitarstjóri Húnabyggðar.
Opinberir aðilar hafa m.a. verið að nýta sér þjónustu Hoobla til að fá verkefnastjóra, fjármálasérfræðinga, launafulltrúa, bókara, mannauðssérfræðinga, skjalastjóra, hugbúnaðarsérfræðinga o.fl. segir Harpa Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Hoobla.
En þetta snýst ekki bara um vöxt hjá sérfræðingunum
Samkvæmt nýlegri grein á Entrepreneur.com jókst tekjuvöxtur sjálfstætt starfandi sérfræðinga á heimsvísu um 8,27% á ári á milli áranna 2023 og 2024. Á sama tíma hafa smærri ráðgjafarfyrirtæki vaxið um 18% árlega, knúin áfram af vaxandi eftirspurn eftir sérfræðiþekkingu eftir þörfum.
Nýleg NBER-staða (frá National Bureau of Economic Research) bendir til 3,6% aukinnar framleiðni á fimm ára tímabili við að nýta sér ráðgjafarþjónustu. Samkvæmt rannsóknum Fiverr.com segja yfir 40% fyrirtækja að framleiðni hafi aukist eftir að hafa unnið með sjálfstætt starfandi sérfræðingum. Í heimsfaraldrinum jókst verktakavinna um 47%, sem sýnir hversu hratt fyrirtæki geta aðlagast. Wired.com, sem sérhæfir sig í að deila nýjustu fréttum og greiningum í tengslum við tækni, nýsköpun og menningu, segir að innan tæknigeirans séu sjálfstætt starfandi sérfræðingar nú orðnir lykilaðilar í gervigreind, netöryggi, vöruþróun og í stjórnendahlutverkum.
Þetta er ekki tískubóla, heldur raunveruleg breyting.
Ísland hefur frábæra möguleika til að tileinka sér þetta vinnufyrirkomulag. Við höfum vel menntað starfsfólk, sterkan mannauð og mikla stafræna færni. Mörg sveitafélög og opinberar stofnanir nýta sér núþegar þjónustu sjálfstætt starfandi sérfræðinga að einhverju leiti. En allt of margir aðilar eru enn fastir í úreltu ráðningarformi, mikill kostnaður hlýst af verndarskilmálum í opinberum ráðningasamningum, sem dregur úr fjárhagslegri hagkvæmni og þjónustugæðum.
Með því að nýta sér störf sjálfstætt starfandi sérfræðinga í gegnum skipulagðar og traustar lausnir, eins og m.a. Hoobla býður upp á, geta sveitafélög og stofnanir:
Staðan er skýr. Til lengri tíma tryggir þetta vinnufyrirkomulag sveitafélögum og stofnunum sveigjanleika, lægri kostnað, aukna framleiðni og hagkvæmni. Sjálfstætt starfandi sérfræðingar eru ekki neyðarlausn heldur stefnubundið stjórntæki til betri rekstrar. Því er kominn tími til að opinberi geirinn endurskoði stjórnun mannafla og nýti tækifærin sem sjálfstætt starfandi sérfræðingar bjóða upp á.
Tengill á greinina sem var birt í Viðskiptablaðinu 4. september 2025
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla