
8 maí, 2025 - 10:59

Í dag snýst allt um hraða, sveigjanleika og nýsköpun. Fyrirtæki þurfa að þróa hraðar, verða snjallari og búa til hugbúnað sem ekki bara virkar, heldur hefur þennan "WOW" faktor. Í auknum mæli eru það ekki stór teymi í föstu starfi sem gera þetta mögulegt. Heldur verður þetta mögulegt með stuðningi gervigreindar og sjálfstætt starfandi forritara og hugbúnaðarhönnuða. Fólki sem stígur inn, lyftir verkefnum upp á næsta stig og skilar raunverulegum árangri, hratt.
Síðastliðna áratugi hafa þróunarteymi nánast alfarið verið í föstu starfi, sem skapar stöðugleika, öryggi og hægfara þróun. En miðað við hraða þróun tækni þá dugar það ekki lengur.
Ný sprotafyrirtæki hafa ekki tíma til að bíða. Stóru fyrirtækjunum skortir stundum sérhæfingu fyrir ákveðna eiginleika. Vöruþróunarteymi þurfa að prófa hugmyndir án þess að bíða eftir ráðningu í heilt stöðugildi. Þarna koma sjálfstætt starfandi sérfræðingar sterkir inn.
Sjálfstætt starfandi forritarar og hönnuðir koma með einstaka eiginleika:
Og þetta snýst ekki bara um að „fylla í eyður“.
Þeir sem starfa sjálfstætt hafa oftar en ekki unnið fyrir mismunandi fyrirtæki, í ólíkum greinum og með fjölbreyttum tólum og verkfærum. Þeir koma með reynslu, lausnamiðaða hugsun og oft nýja nálgun sem fastráðna teymið sér ekki lengur.
Þeir bæta ekki bara við liðsheildina – þeir bæta þróunarferlið sjálft.
Að vinna með sjálfstætt starfandi sérfræðingum snýst ekki um að „spara“ heldur að nýta fjármuni, tíma og hæfileika betur. Þegar þetta er gert rétt, þá verður verkefnið ekki bara betra og skýrara, heldur batnar menningin í fyrirtækinu. Samvinna verður laus við síló, gæði aukast og nýsköpun fær vængi og tækifæri fæst til að taka á flug.
Við vinnum með fyrirtækjum sem eru að uppgötva hversu miklum árangri má ná með réttu fólki, án langtíma ráðninga. Innan Hoobla er net af forriturum, hönnuðum, vöruþróunarfólki og tæknileiðtogum sem hjálpar fyrirtækjum að búa til hugbúnað sem skiptir máli, eitt verkefni í einu.
Heimurinn er að breytast hratt. Og hvernig við vinnum er að breytast með.
Við þurfum að hætta að hugsa í stöðugildum og byrja að hugsa í hæfileikum.
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla