
29 nóvember, 2025 - 09:26

Hoobla hlaut nýverið styrk að upphæð 4 milljónir króna frá Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka.
Styrkurinn verður vel nýttur til áframhaldandi þróunar og skölunar á Hoobla hugbúnaðinum og er okkur mikil hvatning.
Eins og segir á vef Íslandsbanka þá var styrkurinn veittur fyrir verkefnið ,,Hoobla scaling internationally" og felur í sér staðfærslu og útvíkkun á stafrænu markaðstorgi Hoobla og gerir þannig fyrirtækinu kleift að vaxa út fyrir Ísland. Verkefnið er unnið í samstarfi við erlenda aðila og styrkir samvinnu landa á milli ásamt því að efla sjálfbæra svæðisþróun með því að laga Hoobla að erlendum markaði.
Hoobla veitir fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum í hverju landi greiðan aðgang að sjálfstætt starfandi sérfræðingum, stjórnendum og ráðgjöfum í nærumhverfi og á milli landa.
Á vef Íslandsbanka má lesa meira um styrkveitinguna.
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla