
12 júní, 2025 - 17:47

Þegar sumarið bankar upp á og starfsfólk fer í langþráð frí finna mörg fyrirtæki fyrir auknu álagi og vantar stuðning.
Þar sem sumir sjá ógn, sjá aðrir tækifæri! Fyrir sjálfstætt starfandi sérfræðinga er sumarið kjörinn tími til að stökkva inn í afmörkuð tímabundin verkefni. Og fyrir fyrirtækin er þetta fullkominn tími til að fá tímabundinn stuðning frá hæfum sérfræðingum.
Mörg svið upplifa aukið álag yfir sumartímann. Hvort sem það er vegna færra starfsfólks, undirbúnings fyrir haustið eða þau þurfa að halda í við skýrslugjöf og reglugerðir. Þörfin minnkar ekki þó sólin skíni. Sérfræðingar með reynslu í eftirfarandi greinum eru sérstaklega eftirsóttir:
✅ Engin langtímaskuldbinding – Fáðu sérfræðing til starfa eins og þörf krefur.
✅ Mjúk umskipti – Tryggðu stöðugleika í vinnuflæði þegar lykilfólk er fjarverandi.
✅ Ný sjónarhorn – Fáðu ferska sýn, ný augu á málin og nýttu til að betrumbæta ferla.
Við tölum um „Hoobla-áhrifin“ þegar fyrirtæki upplifa að sérfræðiþekking sjálfstætt starfandi sérfræðinga, stjórnenda og ráðgjafa auka sveigjanleika og fókus auk þess sem árangur kemur í stað álags.
Með því að fá ný augu og nýjan huga inn í annars fastmótað teymi þá verður til aukin nýsköpun og fókus verður skýrari á afmarkað verkefni. Nýrra spurninga er spurt, öðruvísi svara má vænta, árangur næst og álag minnkar.
Hjá Hoobla gerum við sumarafleysingar snjallar og hnökralausar. Með hundruðum sérvalinna sérfræðinga sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum, geta fyrirtæki fundið réttu hæfnina fyrir sín verkefni á örfáum dögum.
Hvort sem þú þarft tímabundinn stuðning eða vilt nýta sumarið sem best – þá er tækifærið hér!
🌟 Gullráð: Ekki bíða eftir „hinum fullkomna tíma.“ Sá tími er núna!
Fáðu TILBOÐ frá hæfum sérfræðingum!
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla