
30 október, 2024 - 13:11

Að fá mannauðsstjóra að láni – sveigjanleg og áhrifarík lausn! 🌟
Það er vaxandi veruleiki á Íslandi að fyrirtæki kjósa að vera með mannauðsstjóra að láni.
Það telst að vera með mannauðsstjóra í láni ef mannauðsstjórinn starfar sem verktaki í því starfshlutfalli sem hentar yfir það tímabil sem hentar.
Oft er valið að hafa þetta fyrirkomulag á ef verið er að meta hvort þörf er á mannauðsstjóra í 100% starfshlutfall, verið er að brúa bil vegna veikinda eða annarra forfalla, fyrirtækið er ekki af þeirri stærðargráðu að þörf er á mannauðsstjóra í 100% starfshlutfall eða það vantar auka hendur inn í mannauðsteymið vegna tímabundins álags o.s.frv.
Gegnum Hoobla hafa fyrirtæki aðgang að reynslumiklum og hæfum mannauðssérfræðingum, mannauðsstjórum og mannauðsráðgjöfum.
Fyrirtæki hafa þá möguleika á að vera með mannauðssérfræðing eftir þörfum og í því starfshlutfalli sem vantar hverju sinni.
Með Hoobla hafa fyrirtækin nú greiðan aðgang að einstaklingum og smærri ráðgjafastofum sem veita slíka þjónustu. Þú getur því hætt að googla og byrjað að Hoobla þegar þú leitar að sjálfstætt starfandi sérfræðingum.
Á íslenskum vinnumarkaði hafa stærri ráðgjafastofurnar verið að veita slíkar þjónustur um árabil með góðum árangri, t.d. Attentus, Intellecta, KPMG o.fl. og nú með Hoobla getur þú líka auðveldlega fundið einstaklingana sem veita slíka þjónustu.
Sem dæmi um þau verkefni sem geta fallið undir verkefni mannauðsstjóra að láni eru til dæmis:
Skólamatur treystir Hoobla
Við í Hoobla erum mjög stolt af samstarfi okkar við Skólamat, en stjórnendur Skólamats fengu mannauðsstjóra að láni í gegnum Hoobla. Þau höfðu aldrei áður verið með mannauðsstjóra og vildu sjá hvernig áhrif það hefði inn á vinnustaðinn og reksturinn að vera með mannauðsstjóra.
Fanný Axelsdóttir, framkvæmdastjóri Skólamats, sagði:
”Við leituðum til Hoobla þar sem við höfðum heyrt góða hluti um Hoobla og að þar gætum við fengið reyndan sérfræðing í tímabundið verkefni.
Það er mjög þægilegt að nýta þjónustu Hoobla og við fundum það sem við leituðum að og hentaði okkur”.
Þau fengu því mjög reyndan mannauðssérfræðing að láni í gegnum Hoobla til að styðja við þeirra öflugu starfssemi. Stjórnendur Skólamats vita að gott starfsfólk er þeirra stærsti auður og þau leggja sig fram við að skapa gott og heilsusamlegt vinnuumhverfi.
Hjá Skólamat starfar öflugur og samheldinn hópur fólks sem hefur ástríðu fyrir að framleiða og framreiða hollan og bragðgóðan mat fyrir nemendur og starfsfólk í leik- og grunnskólum vítt og breitt um suðvesturhorn landsins.
Mannauðssérfræðingurinn studdi við stjórnendur og starfsfólk, kom að uppsetningu og viðhaldi mannauðsferla og færði fyrirtækinu þekkingu sína til að stuðla enn betur að góðri vinnumenningu, vinnuuhverfi og heilt yfir að markmiðum fyrirtækisins í rekstri væri náð.
„Fyrir mikilvægasta fólkið“ eru einkunnarorð Skólamats og þau sýna það í verki alla daga.
Við í Hoobla erum stolt af því að hafa aðstoðað Skólamat og stutt við þeirra góða árangur ✨🍀
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla