
29 október, 2024 - 10:57

Deilihagkerfið á Íslandi (e. gig economy) hefur tekið miklum breytingum á undanförnum 3-4 árum. Það hefur vaxið gríðarlega, hefur endurmótað hið hefðbundna vinnufyrirkomulag, breytt samsetningu vinnuafls, bætt kostnaðarstjórnun á vinnustöðum, bætt viðbragðshraða innan vinnustaða, aukið sviegjanleika og haft áhrif á ráðningafyrirkomulag.
Þar sem deilihagkerfið er stöðugt að styrkjast er áhugavert að velta fyrir sér þróun þess, skilja hvaða afleiðingar það hefur og meta þær áskoranir og tækifæri sem það býður vinnustöðum á Íslandi upp á.
Deilihagkerfið á Íslandi hefur vaxið undanfarin ár og má mögulega tala um bylgju sem hefur farið af stað, knúin áfram af ýmsum þáttum eins og tækniframförum, COVID og þörfum atvinnulífsins (vinnustaða og starfsmanna) um aukinn sveigjanleika.
Fólk sem starfar sem verktakar og hlutastarfsmenn leggja nú mikið til atvinnulífs í landinu.
Árið 2021 var Hoobla stofnuð, sérfræðingaverkvangur þar sem fyrirtæki og stofnanir geta nálgast sjálfstætt starfandi sérfræðinga, stjórnendur og ráðgjafa með einföldum hætti, fyrsti slíki vettvangurinn á landinu. Þessir sérfræðingar eru að starfa á sviði verkefnastjórnunar, fjármála, mannauðs, gæðastjórnunar, upplýsingatækni, greiningar, stefnumótunar, markaðssetningar o.fl.
Áður en Hoobla var stofnuð er til löng saga þar sem iðnaðarmenn, lögfræðingar, endurskoðendur, bókarar, læknar o.fl. starfa sjálfstætt. Þannig að þetta er ekki nýtt af nálinni að einstaklingar kjósi að starfa sjálfstætt eða að fyrirtæki og stofnanir nýti sér þjónustu verktaka.
Árið 2023 voru Giggó og Wolt stofnuð á Íslandi. Giggó er fyrsti vettvangurinn á Íslandi þar sem hægt er að nálgast á einum stað fjölbreytta þjónustuaðila, t.d. iðnaðarmenn, fólk sem þrífur hús, flutningsaðila, nuddara, plötusnúða, veislustjóra o.fl.
Wolt er svo finnskur vettvangur sem hóf starfsemi á Íslandi fyrir heimsendingar frá veitingastöðum og smásölum.
Þessir þrír vettvangar (Hoobla, Giggó og Wolt) gera það auðveldara en nokkru sinni fyrr að fólk geti starfað sjálfstætt á Íslandi og fengið gott aðgengi að verkefnum sem þau vilja vinna.
Atvinnulandslag á Íslandi er því fjölbreyttara, kraftmeira og sveigjanlegra með greiðu aðgengi að fólki sem kýs að starfa sjáfstætt að fullu eða meðfram öðrum störfum.
Deilihagkerfið mun halda áfram að þróast, og í framtíðinni má búast við frekari nýsköpun á þessu sviði.
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla