
3 apríl, 2025 - 19:14

Við í Hoobla erum afar stolt af að vera meðal þeirra 18 fyrirtækja sem tilnefnd voru til UT verðlauna SKÝ árið 2025.
Við erum í hópnum “UT Sprotinn”, sem er fyrir fyrirtæki sem hafa verið starfandi síðastliðin 1-6 ár og eru að bjóða lausnir sem hafa vakið athygli.
Þetta er mikil viðurkenning fyrir okkur í Hoobla og undirstrikar góðan árangur í þróun á hugbúnaði okkar og að við höfum haft jákvæð áhrif á íslenskt atvinnulíf ✨
Verðlaunahátíðin fór fram í Eldborgarsal Hörpu, tónlistarhúsi, 21. mars 2025. Þó að Hoobla hafi ekki staðið uppi með bikar þá er tilnefningin ein og sér mikill heiður.
Einvala meistarar unnu síðuna með Hoobla, og ber þar helst að nefna Elías Gíslason, Kjartan Örn Bogason, Friðrik Snær Ómarsson, Kristinn Örn Kristinsson, Ragnheidur H. Magnusdottir, Ingvar Bjarnason og Harpa Magnusdottir 💜
Við þekkum fyrir okkur og óskum öllum sigurvegurum til hamingju! Þið eruð geggjuð! 💜
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla