
20 nóvember, 2026 - 16:00

Við kynnum nýtt viðmót á „Mínu svæði“ hjá Hoobla. Þar tekur á móti þér vinnuborð sem veitir betri yfirsýn og greiðari aðgang að verkefnum, upplýsingum og þjónustu. Markmiðið er einfalt: að gera þér auðveldara að nýta Hoobla, hvort sem þú leitar að sérfræðiþekkingu eða býður fram krafta þína.
Fyrir fyrirtæki og stofnanir verður leiðin að því að fá sérfræðinga til starfa einfaldari og skýrari. Hvort sem vantar aðstoð við afmarkað verkefni eða reglulegan stuðning í hlutastarfi hjálpar nýja viðmótið þér að komast af stað og halda utan um verkefnin þín. Þannig verður auðveldara að nálgast sérfræðiþekkingu í því umfangi sem hentar þínum rekstri.
Sérfræðingar fá einnig betri yfirsýn yfir sín verkefni og greiðari aðgang að upplýsingum sem tengjast samstarfinu við Hoobla. Á vinnuborði þeirra munu jafnframt birtast tilboð og gagnlegar upplýsingar sem geta stutt við vegferð þeirra sem starfa sjálfstætt.
Við viljum að Hoobla sé meira en staður þar sem fyrirtæki og sérfræðingar mætast. Við viljum líka styðja við fólkið á bak við verkefnin og auðvelda því að byggja upp og þróa sína vegferð sem sjálfstætt starfandi sérfræðingar. Þess vegna mun efni fyrir sérfræðinga á vinnuborðinu halda áfram að vaxa og þróast.
Nýja viðmótið er liður í áframhaldandi þróun Hoobla, þar sem við leggjum áherslu á skýra yfirsýn, einföld skref og gagnlega þjónustu fyrir bæði verkkaupa og sérfræðinga.
Skráðu þig inn á Hoobla og kynntu þér nýja vinnuborðið. Við hlökkum til að heyra hvernig þér líkar!
Harpa MagnúsdóttirStofnandi Hoobla