Skjalastjóri að láni

Fáðu reyndan skjalastjóra að láni – í því umfangi sem hentar þínum rekstri.

Skjalastjóri að láni hjálpar fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum að koma skipulagi á skjala- og upplýsingastjórnun, bæta verklag og tryggja að mikilvægar upplýsingar séu varðveittar, aðgengilegar og meðhöndlaðar á réttan hátt.

Skjalastjórar í samstarfi við Hoobla hafa reynslu af fjölbreyttum verkefnum á sviði skjala- og upplýsingastjórnunar, hvort sem er innan almenna eða opinbera geirans, og geta bæði tekið að sér afmörkuð verkefni eða sinnt skjalastjórn reglulega í tilteknu starfshlutfalli.

Skjalastjóri að láni getur meðal annars:

  • Greint stöðu skjala- og upplýsingamála
  • Komið skipulagi á skjöl, gögn og rafrænar upplýsingar
  • Mótað skjalastefnu, verklag og verkferla
  • Sett upp eða endurskoðað málalykla, skjalaflokkun og skráningarreglur
  • Aðstoðað við val, uppsetningu og innleiðingu skjala- og málakerfa
  • Stutt við rafræna skjalastjórn og stafræna umbreytingu
  • Aðstoðað við grisjun, varðveislu og skil skjala
  • Skilað gögnum til Þjóðskjalasafns, þar sem krafa er gerð um það
  • Tryggt að skjala- og upplýsingastjórnun sé í samræmi við viðeigandi lög, reglur og kröfur
  • Frætt og þjálfað starfsfólk í réttri meðferð, skráningu og varðveislu skjala

Þjónustan er sveigjanleg og umfangið fer eftir þörfum hvers fyrirtækis eða stofnunar, hvort sem þig vantar skjalastjóra til að taka til í skjalamálum, byggja upp verklag frá grunni, innleiða nýtt kerfi, sinna tímabundnu átaksverkefni eða koma reglulega inn í reksturinn í ákveðnu starfshlutfalli.